elva goes wild
Sálfræðinemar
11.02.2008 17:32:31 / elva

nýtt blogg,

halló halló, er komin með annað blogg: elvabra.blog.is  lofa að vera duglegri að skrifa þar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:56:45 / elva

nýtt blogg...finally :)

Hæjjj...hvað er uppi? Hmm það er kominn tími á að maður skrifi e-ð smá hérna, en annars er eiginlega ekki mikið að frétta.. 

-Til hamingju elsku Selma, Gísli og Amanda með íbúðina! Það er ekki amalegt að kaupa af celebrity..hehe og f*** off með að vera að fara á Hróaskeldu!  

-I love u Lísa fyrir hafa ákveðið þetta með skólann! Þetta verður gaman og algjör kökusneið ;) 

-I love u Linda fyrir að hafa ákveðið að koma til okkar í íslenskuna..töff töff! Á íslensku má alltaf finna svaaaar...  

-Birta er ennþá hjá okkur og það er svo gott að hafa hana, litla apann sem við elskum svo mikið! :D 

 -Rakel er búin að fá ný Diesel föt sem strax í upphafi voru aðallega ætluð sem súfistaföt hahaha algjör pæja með vinkonunum.. 

-dagurinn í dag var einn af ,,þessum dögum”, byrjaði með því að ég var að verða of sein í vinnuna og hendist inn í bíl en fannst hann eitthvað skrýtinn að fara af stað ...kannski af því það var ALVEG flatt á einu dekkinu...vá hvað ég varð morgunfúl allt í einu! Pantaði leigubíl í einum grænum og náði að koma á réttum tíma! Hahh...en Adam var ekki lengi í paradís...(allt evu að kenna) því það var allt í steik í vinnunni og ég mundi af hverju ég var búin að segja upp...en eftir hádegi þegar við vorum öll í garðinum að sóla okkur þá var ég búin að steingleyma því aftur J  

-já er búin að segja upp í vinnunni, er búin að vera þarna í 4 ár og 4 mánuði!!! Ætlaði rétt að koma við þarna..en ég fer í sumarfrí 1.ágúst og er þá hætt..er að hugsa um að sækja um hjá ÍTH og síðan er margt annað sem kemur til greina og er e-ð að gerjast í kollinum en maður dettur alltaf á e-ð sniðugt, er ekki þekkt fyrir að stressa mig á e-u svona, hef aldrei á ævinni verið atvinnulaus að reyna að redda mér vinnu..

 

-Fer til Köben 15.ágúst...ójá mér leiðist það ekkert, ætla að sitja á strikinu með frappe og 10 innkaupapoka og hlæja að skrýtna fólkinu og leyfa sólinni að kyssa mig...eða rigningunni að lemja mig!

 

-Áslaug og Nuno eru að fara til Barcelona á laugardaginn...væri til í að vera að fara með.. 

-Gummi fór á Hamingjudaga á Hólmavík á föstudaginn, fann enga hamingju og kom í bæinn á laugardaginn hehe fór reyndar e-ð á suðurnesin að hitta e-ð lið.. 

 

-ég var svo sorgmædd í fyrradag þegar ég heyrði fréttina um litla hundinn sem var settur í tösku og svo var honum bara sparkað á milli.. mér varð eiginlega bara óglatt, við vitum að svona fólk er til en hverjar eru líkurnar eiginlega á því að finna hóp af svoleiðis mönnum á litla íslandi, hvað er að gerast í hausnum á þeim sem tekur þátt? Að vera töff? Var að spá í að finna þá og troða þeim í tösku og velta þeim kannski niður fjall eða e-ð sniðugt..athuga hvernig þeim líður.. neee ætli það, maður væri þá ekkert betri.

 

-Það er ekki lítið hvað ég er sátt við veðrið undanfarið! Tan baby..og maður er allur e-ð léttari á því og skemmtilegri! Ef það er hægt!! Hahh.. 

-Einn í vinnunni minni (og þið vitið hvar ég vinn..) spurði hvenær sumarið kæmi, hann er búinn  að sitja úti undanfarið og njóta sumarsins en var greinilega ekki alveg búinn að átta sig á þessu, honum var sagt að sumarið væri sko löngu byrjað og þá tók minn alveg kipp og sagði ,,Gleðilegt sumar” og byrjaði að syngja ,,Það er komið sumar....”!! hehehe hann allavega komst í gírinn, aðeins seinna en hinir þó :D  ...En ég veit ekki hverju öðru ég á að ljúga að ykkur, svo ég er farin að sofa, er í fríi næstu 2 daga! Ljúfa líf, ljúfa líf..dödödödömm ;)  bleble..Elva J 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 17:26:04 / elva

Jójó!

jahérna hér... þetta líst mér á, bæbæ framsókn! var að horfa á aukafréttatíma þar sem Geir H.Haarde og Ingibjörg Sólrún voru að hefja viðræður um samstarf flokkanna, gott mál það, vonum að þetta verði beginning of a beautiful friendship :D En allt er gott að frétta af mér, húsbíllinn í vinnslu, alltaf að verða sætari og sætari, hlakka til þegar búið verður að mála hann og svona.

Fór á próflokadjamm í gær, en fór bara snemma heim eða um 1.30 :lol:--glatað en ég var bara svo þreytt eftir bílastússið...

Er að drepast úr harðsperrum og með hálsbólgu og mega kvef, og það er allt húsbílnum að kenna, enda var ég á hnjánum að skrúbba klósettið og veggina inni á því í gær,,,VÁ hvað það var skítugt, það getur enginn trúað´því ,ég fór ábyggilega 10 ferðir yfir veggina með þjark og leysigeisla og alls konar drasl, notaði tannbursta á skrúfur og annað, og sápuvatnið varð svart! en hann er að verða hreinn bráðum, þarf bara blóð, svita og tár í þetta :D en ég er semsagt með harðsperrur útaf púlinu og kvef af því ég var í eiturefnaskýi við þrifnaðinn, og daginn þar á undan var ég ekki með maska þegar ég var að pússa hann að utan með juðara þannig að ég hef fengið málningaský í lungun....  8|  en það lagast, hef engar áhyggjur af því.. en fyrir utan slenið þá líður mér mjög vel og hlakka svo til sumarsins að það er engu lagi líkt! 

Er búin að fá úr einu prófi, fékk 7 og er bara nokk sátt við það, ætla nú að taka mig á í haust og mæta betur í tímana og svona..

En ég hef ekkert að segja nema ég ljúgi e-u að ykkur ..þannig að

bleble í bili, það koma bráðum myndir ;)

love, Elva hörkukvendi ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 22:30:40 / elva

Aloha!

ok, eurovision er ekki í náðinni hjá mér núna...en eurovisionkvöld eru alltaf skemmtileg og sérstaklega þegar kosningar eru á sama degi! en ég hef nú svosem ekkert merkilegt að segja ykkur, nema sé ykkur mega hress á aroma, já eða jafnvel niðri í bæ í kvöld..love Elva ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 22:51:18 / elva

pimp my ride!

Jæja!! Kláraði prófin í dag, vúhú!! nú er bara sumarið tekið við og OMG hvað það verður frábært, vitiði útaf hverju???  Þið trúið aldrei aldrei aldrei hvað ég er búin að gera...hehehehe ég er búin að festa kaup á HÚSBÍL! já ég segi það satt og skrifa að ég er orðin húsbílaeigandi, bíllinn er með svefnpláss fyrir ca 3 fullorðna og 2-3 börn og er með klósetti, eldhúsi, eða það er að segja vaskur, borð og gott skápapláss, það er fataskápur líka, sem er auðvitað gott fyrir svona pæjur...,,hjónarúmið" hefur tvö hlutverk, á daginn er það borð með u-bekk í kringum og á nóttunni er það rúm. tiltölulega ný sólarsella er á bílnum sem er mjög gaman, en það er svona unit sem hleður inn orku þegar sólin skín :D bíllinn er blár og hvítur en ég og gummi ætlum að mála hann hvítan og hafa jafnvel dökkgrátt neðst.. ég er núna opinberlega meðlimur húsbílafélagsins og er númer 68, lengi lifir hippakynslóðin en 68 passar vel við hippafílinginn sem fylgir svona ævintýrum- 68 kynslóðin 8) (sem ég er nota bene ekki partur af fyrir þá sem ekki vita, hehe) gripurinn er kominn með nafn:FLÓKI, fyrir utan hvað ég er flókin þá á þetta nafn rætur sínar að rekja til Flókastaða í Fljótshlíð...en afi minn ólst þar upp... vorum að spá í að skíra hann Brókin, þá væri hægt að segja ,,þarna kemur Elva á Brókinni"!  HAHAHA það væri kúl, en hitt nafnið hefur sérstaka þýðingu fyrir mig :)

Nú tekur bara við að bretta upp ermar, þrífa, skrúbba, bóna, mála, pússa... og hendast síðan bara inn í sumarið!!

jebbjebb, þetta er æði 8)

Segi ykkur hvernig gengur að gera hann fínan, en ég sæki hann e.hádegi á morgun..

BLEBLE, Elva ,,white trash" hamingjusama!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 15:01:40 / elva

???

Ok, þetta er e-ð skrýtið, ég var e-ð að ljúga að ykkur, það stóð að 10 manns væru búnir að koma i dag, en núna stendur bara 4!!! hmm anyway..

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:21:55 / elva

SKO!!!

þetta finnst mér lélegt, 10 manns bunir að kíkja á síðuna í dag og enginn kvittar eða commentar! blogg er eiginlega svona eins manns tal og maður veit ekkert hvort það sé verið að lesa eða hvað, þið eruð kúkalabbar!! hehehe   segi ég sem kvitta eiginlega aldrei sjálf ;)

from hafnarfjörður with love ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 19:37:23 / elva

Jæja...!!!

Þá er bara að finna e-ð til að tala um..hehe en í gær var stór dagur, ég fór í próf í íslenskri bókmenntasögu, sem ég er búin að kvíða svo fyrir, en þetta var 10 mín munnlegt próf og maður vissi ekkert hvað hann myndi spyrja um! Mjög stressandi, en alla leiðina inn í reykjavík lofaði ég guði að vera svo dugleg fyrir næstu próf og bað um miskunn í þessar hræðilegu nokkru mínutur J ég veit ekki hvort hann hafi tekið e-ð mark á mér af því ég hef nú alveg sagt þetta áður og síðan þegar ég næ prófunum þá þakka ég bara pent fyrir mig og skelli mér á djammið!! Hehe en ég get allavega hætt að hugsa um bókmenntasöguna núna, á föstudaginn er ég að fara í heimspekileg forspjallsvísindi, eins skemmtilega og það hljómar! En það er búið að segja að ef maður les greinarnar sem á að lesa þá er maður góður, það hljómar nú ekki mjög flókið J en svo fer ég ekki í næsta próf fyrr en 9.maí, glæsilegt frí þarna á milli, væri samt betra að ljúka þessu af, en það er í setningarfræði, sem ég get ekki sagt að sé e-ð skemmtilegt en betra að ljúka því af..

 

Anyway! Nóg um það..eins og sést þá hef ekki frá mörgu að segja J

 

Um daginn sá mamma auglýsingu í blaðinu um gefins ástargauka (það eru rosalega fallegir páfagaukar sem eru auk þess mjög klárir, geta lært að tala smá) og það átti að senda bara email og síðan yrði haft samband við mann og hún bað mig um að semja e-ð sniðugt til að fá þá..ég horfði á hana og leit síðan á Brand (gamla, feita köttinn okkar) og spurði af hverju í ósköpunum hún vildi það, ég hef aldrei heyrt hana tala um að hana langaði í páfagauk! ,,Æjj, bara upp á djókið, við fáum þá hvort sem er ekkert..það eru svo margir sem senda”,  ég fer í tölvuna og sendi póst til konunnar sem hljómaði eins og ættleðingarumsókn og þegar ég var búin  að senda hann fer ég til mömmu og spyr hana hvað við eigum að gera ef við myndum fá þá! Við hlógum að þessu og mamma sagði að það myndi þá bara reddast, við myndum  ráða fram úr því...eftir klukkutíma fæ ég sms um að konan myndi gjarnan vilja að ég myndi ættleiða gaukana!! Guð minn góður!! Hugsaði ég og spurði mömmu hvað í ósköpunum hún væri búin að koma okkur í, hvað hún væri búin að koma mér í!!  Þegar þeir voru komnir í hús, voru þeir á borðstofuborðinu í smá tíma og við vorum að skoða þá og svona...og Brandur vissi ekki sitt rjúkandi ráð, sat rétt hjá og starði á þá og sleikti út um, hann hefur ábyggilega haldið að við værum að rækta mat fyrir hann, fita þá og svona og síðan fengi hann að vera einn með þeim í smá tíma.. hahaha allt kvöldið var hann á nálum, svo fór hann út til að róa sig og þegar hann var kominn aftur fann hann þá ekki aftur en heyrði alltaf í þeim og þetta gerði hann ennþá meira crazy, skimaði eftir þeim út um allt, aðallega upp í loftinu, greinilega innbyggt í köttum að horfa upp eftir fuglum! Hann hoppaði upp á skenkinn í stofunni, en fyrir ofan hann er stór spegill og þá kom hann auga á þá í gegnum spegilinn, þar sem þeir voru í ytri stofunni og maður vissi ekki hvert hann ætlaði, í gegnum spegilinn eða hvað, hann reyndi það allavega en gekk ekki vel og varð frekar pirraður og skottið á fullu, hann gerði sér enga grein fyrir að þetta væri spegilmyndin af þeim og var að leita leiða inn í spegilinn! Ef þetta var ekki efni í grínmynd þá veit eg ekki hvað! :haha:

Allavega, fuglarnir eru komnir á eftri hæðina í herbergið hennar Rakelar og þar er alltaf læst núna, Brandur situr stundum fyrir framan og bíður eftir tækifæri til að ráðast inn en það mun ekki koma, elsku kallinn er alveg bit....

 

-ég fór í bíó í gær á The messengers og ég varð fyrir smá vonbrigðum, bjóst við meiru en mér brá samt fullt, þetta er alveg svoleiðis mynd, ekki mikil gæði en hræðir mann, það þarf nú samt ekki mikið til að hræða mig , ég er svo ímyndunarveik og taugaveikluð! En ég var í mjög góðum félagsskap svo ég var ekkert svo hrædd J

 

Einn brandari í lokin frá vinnustaðnum mínum:

Við eldaðum læri og flottheit á sunnudegi og ísterta í eftirrétt og einn ónefndur heimilismaður segir:

mmm, Það mættti nú bara halda að það væri sunnudagur!

Við hlæjandi: Það ER sunnudagur!

Hann: já en ég meina NÆSTI sunnudagur!

 

Þetta var svo mikil snilld!!   Hann kann sko að svara þessi...

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 18:10:53 / elva

men men men...

án þess að spyrja kóng, prest né Lindu ákvað ég að stela þessu af síðunni hennar Lindu, þetta var bara of gott til að sleppa því!  

Men are like..

...placemats
they only show up when there's food on the table

...mascara
they usually run at the first sign of emotion.

...bike helmets
they're good in emergencies but usually just look silly.

...government bonds
they take so long to mature.

...copiers
you need them in reproduction but that's about it.

...lava lamps
fun to look at it but not all that bright.

...bank accounts
without a lot of money they don't generate a lot of interest.

...high heels
they're easy to walk on once you get the hang of it.

...curling irons
they're always hot and always in your hair.

...mini skirts
if your not careful they'll creep up your legs.

...handguns
keep one around long enough and your gonna want to shoot it.

 

ertu að grínast hvað þetta er töff!! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 15:14:38 / elva

stelpan hún stígur á stokk...

já haaalló! eins og svo margir aðrir er ég hætt við að hætta að blogga :) núna vantar mig nefnilega eina ástæðu í viðbót fyrir því að vera ekki að læra...hummhumm en af mér er allt frábært að frétta og skemmtileg helgi framundan, á morgun er ég að fara á árshátíð í skólanum.. byrjar verður í fyrirpartyi hjá hinni alkunnu skemmtanadívu Þóru sem býr á stúdentagörðunum, nemendafélagið Mímir (hinn dásamlegi) mun sjá okkur fyrir bjór , sem er ekki mjög slæmt, og svo kemur rúta og sækir okkur, en í þessu partyi verða nýnemar í íslensku en eldri nemendur sjá sér ekki fært að byrja að djamma með svona óþroskuðu liði ..neee djók, þaðan verður haldið í Reykjavíkurakademíuna þar sem við munum borða dýrindis mat og ætli það verði ekki e-r drykkjarveigar þar á borðum líka, síðan er kvöldið endað í súlnasalnum þar sem verður dansað af sér rassgatið fram á bleika eða jafnvel rauða nótt! á laugardaginn verð ég mjög svo ,,hress" og fer að undirbúa mig fyrir næsta geim sem er árshátíð hjá smfr eða vinnunni minni, við byrjum á fyrirparty um 18 leytið og svo verður haldið á Grandhótel þar sem við borðum e-ð gott og höldum svo á dansgólfið þegar hið alkunna Svitaband byrjar að spila....Svitabandið! I know! ætli maður fari ekki í fyrra fallinu af þeim dansleik til þess að hitta mínar yndisfögru vinkonur á dansgólfi Hressó í bænum... eftir þessa helgi verður svo haldið rakleiðis á VOG þar sem mikil úthreinsun mun eiga sér stað!!!!  neinei kannski ekki alveg en allavega þarf maður að fara að taka því rólega og fara að lesa bókmenntasöguna en ætli ég sé ekki svona tíuþúsund blaðsíðum á eftir áætlun! það er ekkert svo rosalegt, allavega ekki óyfirstíganlegt ...

Fyrir utan þetta er allt fínt að frétta og sumt mjög svo skondið en verst að það sé ekki hægt að setja það á prent!! það væri mjög gaman að skrifa um allt sem er búið að vera í gangi...en hvað ætti maður þá að tala um á Súfistanum?? ég vona að þeir sem ég er ekki búin að tala við lengi eða hitta taka það ekki persónulega en það þarf að fara að plana hitting og skemmtilegheit! :haha:

from Hafnarfjörður with love..

Elva ,,the tjúttmaster" ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 03:15:03 / elva

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!!!!!!!!!!! :)

ég sé engan tilgang í að vera að tala við sjálfa mig á þessari síðu þannig að ef ég þarf að tala við þig þá færðu símtal eða sms...þetta er eins og að senda jólakort til jólasveinsins...!! það er enginn að lesa...allavega af commentunum að dæma :) letihaugar, sé ykkur á súfistanum í slúðrinu :) kissikissi :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 00:35:09 / elva

Þú verður tannlæknir...þú verður tannsi!

já það var ansi vindasamt í mínum munni í morgun... ég fór til tannlæknis og það sem þurfti að ryksuga munnvatnið! þetta er svo ótrúlega óþægilegt að láta sjúga allan vökva úr munninum svo maður getur varla andað! síðan skrapp tannsi bara fram og hengdi suguna í munnvikið á mér á meðan...halló! ég er sko manneskja takk fyrir, sem þarf smá súrefni, ekki mikið, bara svona til að halda heilanum gangandi takk :) og annað...er ekki örugglega árið 2006? er ekki komin nógu góð tækni til þess að tannlæknar geti haft hljóðlausa bora??? þetta viðurstyggilega, andstyggilega hljóð satans glymur í hausnum á manni og maður rígheldur sér í stólarmana af því maður býst alltaf við því að deyfingin klikki og sársaukinn stingur upp í haus og niður í tær..tannsi skilur náttúrulega ekkert í þessu stressi, en það er líka af því hann heyrir ekki í bornum svona eins og ég..það er að segja INNI Í HAUSNUM Á MANNI! heyrðu já eitt síðan í viðbót: BÓMULL!!! Er ekki hægt að finna eitthvað annað til að troða meðfram tönnunum, nei takk segi ég og skrifa NEI TAKK! Tannsi hafði aldrei heyrt annað eins, að e-m þætti vont að hafa bómul uppi í sér...sko ef enginn hefur áttað sig á því þá ískrar í bómul þegar hann verður rakur og er upp við e-ð...svona eins og tennur, ég veit ekki hvort þið skiljið hvað ég á við, en þetta er svona svipað eins og að bíta í handklæðishorn eða blauta ullarvettlinga! ég fæ kul í tennurnar við tilhugsunina! en kannski er ég bara skrýtin, en þá ætla ég bara að vera það, án þess að fá bómul upp í mig 8|

jæja, ansi langur pistill um tannsa hér! en varð að deila þessu með ykkur...ég er farin að sofa og vonandi vakna ég laus við kul á morgun..

Góða nótt góðir hálsar...hvar svo sem þið eruð! :klikk:

Elva


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 21:46:57 / elva

Algjör skylda að svara!!!

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 21:17:55 / elva

geisp!

ég er búin að vera ógeðslega dugleg í dag að læra..enda er ég þreytt eftir því! Ég ætla að reyna að vera duglegri að fara á bókhlöðuna og læra, það gengur bara vel.. en tilgangur bloggsins var að segja ykkur setningu dagsins, hana á hún Lísa: ...en hvað var hann að gera í silkislopp?? hahahaha þetta var ótrúlega fyndið.. þeir sem fatta ekki samhengið verða að fara neðar og skoða færsluna um penthouse íbúð nr.12 varð að deila þessu með ykkur,...sorry Lísa...þetta var bara góð setning! :) Ta Ble jors trúlí

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 12:11:18 / elva

Sumarljós og svo kemur nóttin

ég á seint eftir að gleyma þessari bók, hún hélt mér allan tímann og ég var svo spennt að vita hvað yrði um persónurnar, maður fær alveg sérstaka sýn inn í hugarheim þeirra og veruleika að manni finnst maður vera á meðal þeirra, hún er líka svo fyndin á köflum að ég átti bágt með mig hérna á bókhlöðunni...dæmi:

Jónas hafði alltaf verið með eindæmum ljós á hörund, eins og ljósapera í myrkri, stattu hjá mér svo ég geti lesið, sagði pabbi hans þegar rafmagnið fór af á vetrarkvöldum á þeim árum þegar enn gerði veður og þorpin sváfu undir snjóþekjunni. Þrátt fyrir næstum óbærilega feimnina sást Jónas þó aldrei roðna, varð bara enn fölari þegar hann fór hjá sér og við vorum dauðhrædd um að hann rynni alveg saman við dagsbirtuna og hyrfi.

ef þetta er ekki fyndin lýsing á manni þá veit ég ekki hvað! :lol:

önnur skemmtileg lýsing:

-og þá gerist eitthvað. Þá gerist það! Sprenging inni í þeim báðum sem lamar alla hugsun, skynsemi, þurrkar út alla fortíð, alla framtíð, því það er ekkert í veröldinni nema þessi stund. Kjartan rekur upp hálfkæft óp, reynir í sóttkenndri ákefð að klofa yfir girðinguna, leggur lófann yfir gaddavírinn, sker sig til blóðs, rekur hælinn einhversstaðar í, missir jafnvægið, dettur með bakið utan í staur, það er vont, festir buxnaskálmina í vírnum, spriklar í senn óður og vankaður þegar hún kemur að honum, þegar hún kastar sér yfir hann og úr hálsi hennar berast hljóð sem eru mitt á milli ýlfurs og urrs. Ég er fastur, másar hann, helvítis buxurnar, hún segir ekki neitt, ber hendurnar fyrir sig eins og hún sé blind eða stödd í þreifandi myrkri, fálmar niður líkama hans, leitar að beltinu undir þungu holdinu, lyftir því, ýtir því til hliðar, kreistir tvisvar handfylli sína og svo fast að hann kveinkar sér, finnur loks beltið, losar það, losar töluna, rennir niður rennilásnum, hann lyftir upp rassinum, hjálpar til, helvítis bakið, stynur hann og síðan, ég er laus, eins og hún sjái það ekki, eins og hún sjái ekki þykk, æðasprungin lærin, eins og hún sjái ekki svörtu nærbuxurnar sem bunga út, hún rífur sig úr bolnum, hann grípur umsvifalaust um bæði brjóstin eins og drukknandi maður, hún grípur blóðguðu höndina og sleikir blóðið, hann dregur buxurnar af henni, þau veltast um í grasinu, æpa samtímis farðu! á hundana sem ærslast utan í þeim, settu buxurnar þínar undir mig másar hún, fjandans grasið stingur mig í rassinn, og þetta orð, rassinn fer alveg með síðustu leifar af sjálfstjórn hans, hann tosar og slítur af sér nærbuxurnar, leggst yfir hana, hún grípur handfylli af holdi, færir fæturnar vel í sundur, breiður limur hans fyllir hana, hún lemur hann áfram með hælunum, slær hann með höndunum, úr fjarlægð séð virðast þau vera að slást.

ég sé þetta svo fyrir mér...feiti gaurinn að troða sér yfir gaddavírinn... vá hvað ég vildi að ég væri ekki búin að lesa þessa bók og væri að fara að gera það núna :D

jæja þið eruð búin að fá skammt af bókmenntafræðinni hérna...ég ætti máske að fara og byrja á hljóðfræðinni sem ég á að skila í dag...það er bara alltof gaman hjá mér :haha:

Ta Ble

Elva, sem ætlar að hætta að segja að bókmenntafræði sé leiðinleg!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2